Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Gestabók
Titill:
Nafn:
Netfang:
Innihald:
Staðfesting á mynd: Captcha mynd (staðfestingarmynd) Endurhlaða mynd
   
 

mamma, pabbi og Jóna Katr... ( Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. ): Takk fyrir okkur

Hæhæ allir á Holtaborg. Fór hér inn á holtataborg.is af gömlum vana og ákvað þá bara að kvitta fyrir okkur í leiðinni. Mig langaði bara að þakka kærlega fyrir okkur þar sem við náðum nú ekki að kveðja alla þegar við hættum. En ykkur er sárt saknað bæði af foreldrum og ég tala nú ekki um Jónu Katrínu. Hún talar mikið um Holtaborg og einn dag í lok sumars vorum við mæðgur að brasa úti á róló, þá segir daman, mig langar til Sönju. Þetta þótti mér ótrúlega vænt um að heyra því með þessum orðum þá veit ég hvað hún var ánægð hjá ykkur. Hún þekkir líka tvær gular risaeðlur :) sem koma oft til hennar í heimsókn og þær heita Sanja og Kristrún :) En við þökkum kærlega fyrir okkur og eins og ég segji þá er ykkur sárt saknað.

Kíkjum kannski í heimsókn til ykkar seinna ef við megum ;)

knús í hús

Kristjana og Jóna Katrín

miðvikudagur, 01 september 2010

Ragnheiður og Pétur ( Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. ): Kveðja frá ömmu og afa

Heil og sæl, starfsfólk og börn á Holtaborg

Hún Sara Sigurrós kvaddi ykkur á föstudaginn eftir eins árs samveru. Hún byrjaði á Bláu deildinni en fór svo yfir á Rauðu. Henni var vel tekið af ykkur öllum og undi sér við leik, lærdóm og söng.

Amma og afi hafa vitaskuld alltaf áhyggjur af litla barninu sínu. Það átti þó sérstaklega við þegar hún fór á nýja leikskólann í fyrrahaust, en viðkynning okkar af starfsfólki sem stjórnendum var slík að við öðluðumst fljótt hugarró.

Oft sóttu afi og amma Söru sína í leikskólann og fengu frásögn af því hvað konurnar hefðu verið góðar við hana og hvað hún hafði gert margt skemmtilegt þann daginn. Iðulega hafði einhver lagt á sig töluverða fyrirhöfn við að gera stelpuna okkar fína með hárgreiðslu og nýrri flottri fléttu. Okkur þótti vænt um að sjá umhyggjuna sem starfsfólkið augljóslega bar fyrir barninu, og sú umhyggja lýsti sér líka á ýmsa aðra vegu.

Heimsóknum okkar á þessa vefsíðu fækkar núna, en það hefur verið bæði skemmtilegt og fróðlegt að fá að fylgjast með í gegnum hana. Þið sinnið síðunni vel með fréttum og myndum og hún er uppfærð eins og vera ber.

Að lokum viljum við þakka ykkur innilega fyrir a

laugardagur, 21 ágúst 2010

Oddný: Sumarkveðja til ykkar

Kæra Holtaborg

Greinilega verður margt skemmtilegt brasað hjá ykkur i sumar. Ég læt hugann stundum reika til ykkar og þá sérstakelga til barnanna sem eru að útskrifast núna, þau eiga enn hólf í hjarta mínuSmile og auðvitað þið kæru kennarar sem enn eruð á svæðinu.

Hjartans kveðjur til ykkar allra, Oddný gamall Holltaborgari

 

þriðjudagur, 02 júní 2009

 

Sýna númer 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Holtaborg | Sólheimar 21 | 104 Reykjavík | s: 553 1440 | Póstur | Viðburðir | Fréttir