| Námsskrá |
|
|
|
|
Leikskólinn Holtaborg heyrir undir Leikskólasvið Reykjavíkur og starfar samkvæmt Lögum um leikskóla nr. 78 frá árinu 1994 og Reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225 frá árinu 1995. Þar er kveðið á um að leikskólinn sé fyrsta skólastigið og í samræmi við það var aðalnámskrá leikskóla gefin út árið 1999. Á grunni hennar ber sérhverjum leikskóla að semja skólanámskrá þar sem gerð er uppeldis- og námsáætlun til lengri eða skemmri tíma. Hver leikskóli hefur sjálfstæði til að móta sína uppeldisstefnu í samráði við foreldra og börn. Megin tilgangur þessarar námskrár er að stuðla að skilvirkara starfi innan leikskólans og veita foreldrum upplýsingar um hvernig við störfum í leikskólanum Holtaborg. Í námskránni er gerð grein fyrir aðferðum og áherslum sem hafa þróast í leikskólanum. Allir starfsmenn sem koma að beinu starfi með börnum leikskólans eru nefndir kennarar í námskránni en það er á ábyrgð fagfólks að marka og framfylgja stefnu leikskólans.
Hér má nálgast námskrá Holtaborgar
|