| Vikufréttir frá Rauðu |
|
|
|
| föstudagur, 02 júlí 2010 13:40 | |||
|
Vikan 28. júní - 2. júlí Halló allir saman. Þessa viku hefur verið fremur róleg þar sem sum barnanna hafa verið komin í frí. Á þriðjudaginn fórum við ferð niður í Laugardal nánar tiltekið á leiksvæði þar sem er skemmtilegt leiktæki sem hefur fengið nafnið Ormurinn. Þar var sko prílað, skriðið, hlaupið og hoppað og skemmtu börnin sér vel við það. Við tókum með okkur sparinesti sem var svali og kex og svo fengum við líka epli. Á heimleiðinni gengum við að Laugardalslauginni og tókum svo strætó heim þannig að úr varð heilmikið ferðalag. Á föstudaginn gerðum við okkur glaðan dag með því að hafa pylsupartý í hádeginu og ís í eftirrétt. Börnin voru alveg viss um það að einhver hlyti að eiga afmæli fyrst að það væri ís á boðstólnum og það fór drjúgur tími í það að ræða hver það væri. Við komumst ekki að neinni niðurstöðu en ísinn stóð algjörlega fyrir sínu Við vonum að þið hafið það gott í fríinu og hlökkum til að sjá ykkur aftur í ágúst. Kveðja frá öllum á Rauðu deild.
|