Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Bláu
fimmtudagur, 01 júlí 2010 15:00

Nú eigum við bara eftir 1 dag saman áður en allir fara í sumarfrí. En síðustu daga höfum við haft nóg að brasa:

Á föstudaginn í síðustu viku þá fóru allir á Holtaborg saman niður að Ljósheimaróló, þar horfðum við á Brúðubílinn. Sumir urðu pínu hræddir við stærstu brúðurnar og þurftu að fá smá knús. En þetta var samt mjög skemmtilegt! Börnin fengu svo heim með sér leikskrá Brúðubílsins og þar má sjá dagsetningar og tíma á næstu sýningum Brúðubílsins og svo er alveg rosalega fínt plaggat í miðjunni.

Á þriðjudaginn seinasta var ákveðið að fara í Húsdýragarðinn Við lögðum af stað niður í Laugardal kl. 9:00 þegar við vorum komin inní garðinn byrjuðum við á að kíkja á refina þar næst fugla, kanínur,naggrísi og svo selina. Þegar við vorum búin að skoða selina langaði okkur að kíkja á litlu grísina en þeir voru sko ekkert voðalega litlir lengur, svo vildu þeir ekkert tala við okkur og sváfu bara. Eftir það fengum við að sjá þegar geitum og kindum var hleypt út í girðingu. Við þurftum að klappa fyrir þær svo þær rötuðu í rétta átt, gaman að fá að vera með. Að lokum skoðuðum við hesta og kýr. Ein kýrin sýndi okkur hvað hún var rosalega klár að bora í nefið með tungunni sinni, það fannst okkur sko fyndið!

Við enduðum svo í sjóræningjaskipinu í Fjölskyldugarðinum, þar fengum við að leika okkur á meðan er verið að grilla handa okkur pylsur og blanda djús! Eftir matinn lág leiðin aftur á Holtaborg, við vorum öll orðin rosalega þreytt á leiðinni til baka og héldum að við ætluðum aldrei að komast aftur upp á leikskóla. En það hafðist og við fórum beint að leggja okkur.

Annars höfum við bara verið að njóta góða veðursins, þó það hafi ekki verið alltaf sól þá er búið að vera mjög fínt og þurrt verður, fullkomið leik veður! Við vonum bara að það verði enn betra í fríinu.

 En eins og áður sagði þá er morgundagurinn síðasti dagurinn okkar fyrir frí, en á morgun er líka seinasti dagur 3 barna á deildinni. Þau Benedikt Árni, Jóna Katrín og Kristófer Chudy eru að hætta á Holtaborg. Við þökkum ykkur fyrir samveruna og vonum að það gangi rosalega vel í nýju leikskólunum ykkar. Við eigum eftir að sakna ykkar mikið!

 

Hafið það gott í sumarfríinu öllsömul! Við sjáumst hress og kát 3. ágúst

 

 

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Holtaborg | Sólheimar 21 | 104 Reykjavík | s: 553 1440 | Póstur | Viðburðir | Fréttir