| Foreldrar hér eru upplýsingar um afslætti frá leikskóasviði |
|
|
|
| Almennar fréttir | |||
| fimmtudagur, 01 júlí 2010 09:11 | |||
|
Reykjavík, 22. júní 2010
Efni: Upplýsingar um reglur um leikskólaþjónustu Þar sem þú átt barn í leikskóla Reykjavíkurborgar vill Leikskólasvið Reykjavíkurborgar vekja athygli á reglum um leikskólaþjónustu og gjaldskrá leikskóla Reykjavíkurborgar á heimasíðunni www.leikskolasvid.is. Reglurnar gilda um umsókn og innritun í leikskóla Reykjavíkurborgar og um gjaldtöku og innheimtu leikskólagjalda. Sérstök athygli er vakin á 6. gr. reglna um leikskólaþjónustu en þar er kveðið á um afslátt af námsgjaldi sem foreldrar geta sótt um að nánari skilyrðum uppfylltum. Afsláttur er ekki afturvirkur og miðast við þann dag er öllum skilyrðum er fullnægt. Afsláttur er veittur af námsgjaldi í eftirfarandi tilfellum gegn umsókn. Afslátt af námsgjaldi fá námsmenn: Í háskólanámi og eru skráðir í að lágmarki 22 ECTS einingar á önn. Taka þarf fram á vottorði frá skóla að um fullt nám í dagskóla sé að ræða. Í framhaldsskóla og eru skráðir í fullt nám í dagsskóla, að lágmarki 15 einingar á önn. Skila skal skólavottorði fyrirfram fyrir hverja önn þar sem fram komi upplýsingar um einingafjölda og staðfesting á því að um fullt nám í dagskóla sé að ræða. Afsláttur reiknast frá þeim degi sem skólavottorði er skilað til Leikskólasviðs. Afsláttur til einstæðra foreldra: Afsláttur er veittur að fenginni umsókn foreldris. Umsókn skal endurnýjuð árlega, fyrir 15. ágúst og afhent leikskólastjóra í viðkomandi leikskóla. Foreldri/forráðamaður sem greiðir námsgjald sem einstætt foreldri þarf að vera skráður einstæður í þjóðskrá. Leikskólasvið getur óskað eftir frekari staðfestingu á því að foreldrar séu einstæðir, s.s. að þeir undirriti staðfestingu þess efnis. Ef foreldrar skilja/slíta sambúð er afsláttur veittur frá þeim degi sem umsókn berst Leikskólasviði svo fremi að upplýsingar um breytta hjúskaparstöðu komi fram í þjóðskrá. Afsláttur er veittur frá þeim degi er framangreindum skilyrðum er fullnægt. Afsláttur vegna örorku: Foreldri sem er 75% öryrki fær afslátt af námsgjaldi. Umsókn þarf að fylgja afrit af örorkuskírteini sem staðfestir að lágmarki 75% örorku. Afsláttur reiknast frá þeim degi sem afrit örorkuskírteinis berst Leikskólaskólasviði. Afslátt af námsgjaldi fá starfsmenn leikskóla Reykjavíkurborgar: Sem sótt hafa um afslátt á þar til gerðu eyðublaði Eru að lágmarki í 70% starfi til að fá afslátt fyrir barn í heilsdagsvistun Eru að lágmarki í 50% starfi til að fá afslátt fyrir barn í hálfsdagsvistun Leikskólastjóri í leikskóla starfsmanns hefur staðfest réttmæti umsóknar Afsláttur gildir frá því að umsókn berst Leikskólasviði.
Afsláttur vegna veikinda barns: Geti barn ekki sótt leikskóla vegna veikinda í fjórar vikur samfellt eða lengur geta foreldrar sótt um allt að 50% afslátt af leikskólagjöldum, sjá nánar í gr. 6.g. Annar afsláttur Veittur er afsláttur af námsgjaldi leikskóla án umsóknar vegna systkina og fyrir börn í elsta árgangi leikskólans. Uppsagnarfrestur Bent er á að gagnkvæmur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi er einn mánuður hið minnsta og skal uppsögn miðast við 1. og 15. hvers mánaðar. Uppsögn dvalarsamnings skal í öllum tilfellum vera skrifleg og skilað til leikskólastjóra. Hið sama gildir um breytingar á dvalarsamningi. Tilkynna skal breytingu á dvalartíma á viðeigandi eyðublaði hjá leikskólastjóra í þeim leikskóla sem barnið dvelur í
|