Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir


Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Til að barninu líði sem best í leikskólanum er mikilvægt að útbúa það eins vel og kostur er.  Veðrið getur verið óútreiknanlegt svo fatnaðurinn þarf að mæta ýmsum þörfum.  Við viljum minna á að mikilvægt er að kíkja reglulega í fataboxið til að athuga hvað vantar.  Óhrein eða blaut föt setjum við í poka og leggjum efst í hólf barnanna.

Muna að MERKJA bæði fatnað og skó barnanna

Útiföt / Hlífðarfatnaður
Pollagalli
Stígvél
Úlpa
Pollavettlingar
Tvö pör af vettlingum
Húfa

Á sumrin
Léttir skór
Þunn húfa / buff

Á veturna
Kuldagalli
Kuldaskór

Annað sem þarf að vera í töskunni
Hlý peysa undir pollagallann
Hlýjir sokkar í stígvélin / kuldaskó
Buxur
Síðermabolur
Sokkar og sokkabuxur
Nærföt

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Í leikskólanum er ekki tekið á móti veiku barni og er það gert bæði vegna barnsins og hættu á smiti fyrir önnur börn. Nauðsynlegt er að barnið jafni sig vel á veikindum sínum og sé heima a.m.k. einn dag hitalaust áður en það mætir í leikskólann. Við mælumst til þess að veikindi barns séu tilkynnt í síma 553-1440. Börnum eru ekki gefin lyf í leikskólanum nema brýna nauðsyn beri til. Eftir veikindi geta börnin fengið að vera inni í einn til tvo daga í samráði við deildarstjóra hverrar deildar.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Afmæli barnanna eru haldin hátíðleg. Afmælisbarnið má bjóða börnunum á deildinni sinni upp á veitingar, þó ekki sælgæti, og fær afmæliskórónu í veislunni. Barnið velur sér „afmælisborðbúnað" sem er geymdur í sérstökum skáp og íslenski fáninn skreytir borðið. Afmælissöngurinn er sungin og allir í leikskólanum eru meðvitaðir um afmæli barnsins.

Lesa meira...
 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Í leikskólanum eru ekki gefin lyf. Því fylgir mikil ábyrgð að gefa lyf, þau geta ruglast saman og einnig getur verið um bráðaofnæmi að ræða. Einu lyfin sem gefin eru í leikskólanum eru astmalyf.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Ef barn slasar sig í leikskólanum er ávalt haft samband við foreldrana og þeir fara með barnið á slysavarðstofu eða heilsugæslu hverfisins. Öll slys eru skráð á sérstakt eyðublað. Leikskólinn borgar ef barn þarf að leita læknis eftir slys.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Holtaborg | Sólheimar 21 | 104 Reykjavík | s: 553 1440 | Póstur | Viðburðir | Fréttir